23.12.2011 17:23

Gleðileg jól



Kæru félagar.
Hundaræktunarfélagið Rex sendir félagsmönnum sínum 
bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Hlökkum til að sjá ykkur öll á nýju ári.

---------------

Nýtt ár mun byrja með krafti en aðalfundur félagsins verður haldinn 16.janúar kl. 20 í Plastprent húsinu að Fosshálsi 17-25 í Reykjavík.
Dagskrá fundar:
Venjuleg aðalfundar störf.
Aðrar umræður.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta á aðalfundinn en hann er einnig góður vettfangur til að viðra ykkar hugmyndir í öðrum umræðum.

Í mars er svo vorsýning félagsins og opnast fyrir skráningu strax eftir jólafrí skrifstofunnar. Sýningin verður helgina 17. og 18. mars.

Stórhundadeild Rex

28.10.2011 22:10

Úrslit

Úrslit eru komin inn úr stórhunda flokkunum.
Tveir stórir hundar kláruðu meistaratitil á seinustu sýningu. Bulldog skvísan ISCH Gígju Daniela varð alþjóðlegur meistari og Labrador töffarinn Sóltúns Rebbi varð íslenskur meistari. Við óskum eigendum þeirra til hamingju með árangurinn.
Eins óskum við ykkur hinum til hamingju með ykkar árangur á sýningunni.

08.10.2011 16:16

Dagskrá

Dagskrá sýningar er komin á heimasíðu félagsins, www.rexhundar.is og má sjá hana þar í heild.

Stóru hundarnir eru sýndir á sunnudeiginum 16.október fyrir utan þá stóru hunda sem eru í heimilishundum.

Heimilishundar: Laugardagur 15.október kl. 12:00 - 12:10

Sunnudagur 16.október.

Enskur Bulldog kl. 12.35 - 12.50
Labrador                 kl. 15.05 - 15.10

Við viljum þó koma vinsamlegum tilmælum til sýnenda og gesta sýningarinnar.

*Við viljum biðja alla sýnendur að vera mætta  með sína  hunda einni klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma. 

*A.T.H.  Sýningartími getur breyst fyrirvaralítið.

*Við viljum einnig minna sýnendur á að hafa með sér heisufarsbækur hundanna til að sýna í skráningu.

Allir hundar verða að vera sprautaðir við Parvo-smáveirusótt

*Sýningartauminn.

*Kúkapoka. 
Við þrýfum upp eftir hundinn okkar og reynum að láta hann gera þarfir sínar úti.

*Nammi eða dót. Allt eftir því hvernig þið viljið verlauna hundinn.

*Og ekki vera í fötum sem eru í svipuðum lit og hundurinn.

*Sýnandi hunds þarf að vera á þrettánda aldursári fyrir utan unga sýnendur.

* Vinsamleg tilmæli til sýnanda: 
Á sýningarsvæðinu er einungist reiknað með einni manneskju á hund. Áhorfendapallarnir eru fyrir aðra gesti.

01.10.2011 22:56

Sýningarþjálfun

Jæja, kæru félagsmenn.
Núna er ekki nema hálfur mánuður í sýningu og hefjast sýningarþjálfanirnar núna eftir helgi. Æfingarnar eru þrjár og verða haldnar í Reiðhöll Gusts í Kópavogi og hefjast allar kl. 19.30.
Fyrsta æfing er þriðjudaginn 4.október.
Önnur æfing er miðvikudaginn 5.október
og sú síðasta er þriðjudaginn 11.október.

Fyrir þau ykkar sem eruð að stíga ykkar fyrstu skref í sýningarhringnum mælum við eindregið með að þið mætið á fyrstu þjálfun og ákveðið svo hvort þið komið á hinar eftir það emoticon
Á æfingunum er farið yfir hvernig taumurinn skal vera, uppstilling og það helsta sem dómarinn gæti beðið ykkur um að gera ásamt því að venja hundinn við borð, ef þarf, og láta kíkja á tennur og skoða hann. 
Gott er líka að googla og skoða myndbönd frá sýningum af ykkar tegund emoticon
Við hlökkum til að sjá ykkur næsta þriðjudag.

31.08.2011 17:25

Seinasti skráningar dagur næsta þriðjudag.

Það styttist óðum í seinasta skráningardag fyrir haust sýningu félagsins sem haldinn verður 15.-16.október í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Seinasti skráningardagur er 6.september!

Lengri opnunartími á skrifstofunni er næsta þriðjudag, 6.september, frá kl. 18 - 20.
Dómari á þessari sýningu er Nigel Marsh frá Írlandi. 

Tekið er á móti skráningum á skrifstofu félagsins að Dugguvogi 6, 2.hæð og í síma 533-1310 á skrifstofutíma. Einnig er hægt að skrá beint í gegnum heimasíðu félagsins. Nánar áwww.rexhundar.is
Einnig er hægt að skrá upp á gamla mátann með að fylla út eyðublöð og senda á rexhundar@rexhundar.is.
Ekki er tekið á móti skráningum nema greiðsla hafi borist. Skráning er bindandi.
Þeir sem kjósa að skrá á sýninguna í gegnum síma, netfang eða heimasíðu félagsins geta lagt sýningargjöldin inn á reikning félagsins:

0135-26-1230 kennitala: 570305-1230

Vert er að taka fram að á sýningunni fer fram keppni ungra sýnenda og heimilishunda og þarf að skrá í þessa flokka sér.
Keppni ungra sýnenda er skipt í tvo aldursflokka. Yngri flokkur er fyrir börn á aldrinum 5 -10 ára og eldri flokkur fyrir börn á aldrinum 11 - 16 ára.
Tilgangur keppni ungra sýnenda er að dæma samband hunds og sýnenda og hvernig sýnandi ber sig að með hundinn.

Félagsmönnum Hundaræktunarfélagsins Rex stendur einnig til boða að auglýsa í sýningarskrá.
Um er að ræða einfalda auglýsingu.


Ræktunarnafn, Tegund

Simi

Heimasíða,netfang

-------------------------------

Mynd

Ræktunarnafn, tegund

Sími

Heimasíða, netfang


Verð án myndar: 3000kr.-
Verð með mynd: 3500kr.-
Auglýsing skal sendast á rexhundar@rexhundar.is
ATH að mynd skal vera í sem bestri upplausn.
Fyrir annarskonar auglýsingar bendum við á að hafa samband við stjórn félagsins í gegnum netfang rexhundar@rexhundar.is eða í síma stjórnarmanna.

Vert er að taka fram að stjórn félagsins óskar eftir sjálfboðaliðum til að taka að sér starf innan sýningarstjórnar félagsins fyrir komandi sýningu. Áhuga samir geta sent póst á rexhundar@rexhundar.is 

Við hlökkum til að sjá ykkur á sýningunni.

31.07.2011 17:17

Blómstrandi dagar og næsta sýning

Dagana 11. - 14. ágúst verður bæjarhátíðin Blómstrandi dagar haldnir í Hveragerði.
Líkt og undanfarin ár mun Hundaræktunarfélagið Rex vera á staðnum á
laugardeginum 13.ágúst frá kl. 13 - 16 .
Í ár ætlum við að hafa tegundarkynningu og eru áhugasamir félagsmenn beðnir um að senda okkur tölvupóst með upplýsingum um hvaða hundakyn þeir eru með og hvaða tími hentar best á netfangið sigrun@rexhundar.is

Í ár munum við líka hafa smá kynningu á hundafiminni. Vanir hundar munu þá fara í brautina en einnig stendur óvönum til boða að prufa.

Hlökkum til að heyra í ykkur.
Stjórn Rex
---------------------------------------------------------------------------------

Skráning er hafin á haust sýningu félagsins sem fram fer 15. - 16.október í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. Komið er nýtt skráningarform sem er fylt út á netinu. Allar frekari upplýsingar á síðu félagsins, www.rexhundar.is 

13.07.2011 13:16

Nýtt netfang Stórhundadeildar

Nýtt netfang storhundadeildar hefur verið stofnað.
Netfangið er storhundar@rexhundar.is 
Ákveðið var að nota @rexhundar.is fyrir öll netföng félagsins.

-------

Eins og glöggir félagsmenn hafa sjálfsagt tekið eftir standa yfir mikklar breytingar á heimasíðu félagsins, www.rexhundar.is Þetta mun taka einhvern tíma en þetta á ekki að valda neinni verulegri röskun á síðunni.

15.05.2011 11:53

Hundafimi

Hundafimi
Miðvikudagskvöldið 25.maí næstkomandi verður hundafimi í Reiðhöll Gusts í Kópavogi kl. 20:00
Aðgangur er ókeypis.
Aðeins fyrir félagsmenn Hundaræktunarfélagsins Rex.
Hundurinn þarf að vera í taumi, ekki flexy taumi, og er gott að hafa nammi með.

Núna er bara um að gera að mæta og prufa
og sjá hvort þú og þinn hundur hafið gaman af. emoticon


----------------------------------------------------------------------------
Undir síðunni, ræktendur, hér til hliðar, er núna hægt fara inn á link á síðu Hundaræktunarfélagsins Rex þar sem hægt er að sjá þau ræktunarnöfn sem félagið hefur samþykkt í gegnum tíðina. Sé vilji hjá þér til að birta frekari upplýsingar en eru nú þegar til staðar á síðunni er hægt að senda mail á sidustjorn@gmail.com
Nú þegar eru nokkrir ræktendur búnir að nýta sér það.
Listann er hægt að skoða 
hér!

12.05.2011 15:21

Athugið!

Breyting á sýningarreglum
Athygli skal vakin á því að frá og með 1.júní 2011 breytast sýningarreglur Hundaræktunarfélagsins Rex.
Eingöngu hundar með ættbók frá Hundaræktunarfélaginu Rex geta tekið þátt í sýningum félagsins, að undanskildum heimilishundaflokki.

-------------------------------
Tegundarlýsing fyrir Labrador er komin inn undir "stórhundategundir i Rex"

03.05.2011 19:21

Úrslit sýningar

Þá er vorsýning félagsins afstaðin og óskum við öllum sýnendum til hamingju með sinn árangur.
Úrslit sýningar eru komin inn á heimasíðu félagsins og eru úrslit úr stórhunda flokkunum komin hérna inn.

Það var svo Rottweiler hundurinn Drago sem var besti hundur sýningar og óskum við eigendum hans og sýnanda innilega til hamingju með árangurinn emoticon

19.04.2011 12:14

Næstu æingar og dagskrá

Jæja kæru félagsmenn.
Næstu tvær æfingar eru núna í kvöld, 19.apríl, í Reiðhöll Gusts í Kópavogi og byrjar hún kl. 20.00 og er til 21.00.
Seinasta æfingin er svo þriðjudaginn 26.apríl á sama stað en hún byrjar kl. 21.00 og er til 22.00
------

Dagskráin er komin og eru stórhundategundirnar bæði á laugardeginum og sunnudeginum:

Laugardagur 30.apríl

Kl  12:00 - 12:09    Heimilishundar
Kl  12:30 - 12:50    Enskur Bulldog
Kl  12:50 - 12:55    Boxer
Kl  12:55 - 13:00    Rottweiler

Sunnudagur 1.maí

Kl  11:30 - 11:35  Labrador Retriever

Rétt er þó að benda á að sýningartími getur breyst fyrirvara lítið.

Við viljum láta nokkur atriði koma fram til sýnanda og gesti sýningar.

*Við viljum biðja alla sýnendur að vera mætta  með sína  hunda einni klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma. 

*A.T.H.  Sýningartími getur breyst fyrirvaralítið.

*Við viljum einnig minna sýnendur á að hafa með sér heisufarsbækur hundanna til að sýna í skráningu.

Allir hundar verða að vera sprautaðir við Parvo-smáveirusótt
Sýningartauminn.
Kúkapoka. Við þrýfum upp eftir hundinn okkar og reynum að láta hann gera þarfir sínar úti.
Nammi eða dót. Allt eftir því hvernig þið viljið verlauna hundinn.
Og ekki vera í fötum sem eru í svipuðum lit og hundurinn.

*Sýnandi hunds þarf að vera á þrettánda aldursári fyrir utan unga sýnendur.

* Vinsamleg tilmæli til sýnanda:
Á sýningarsvæðinu er einungist reiknað með einni manneskju á hund.
Áhorfendapallarnir eru fyrir aðra gesti.

13.04.2011 12:03

Sýningaþjálfanir

A.T.H.
Sýningaþjálfanir fyrir vorsýningu eru:
Mánudaginn 18. apríl kl. 19.30 - 20.30.
Þriðjudaginn 19. apríl kl. 20.00 - 21.00.
Þriðjudaginn 26. apríl kl. 21.00 - 22.00.
Allar eru þjálfanirnar í Reiðhöll Gusts í Kópavogi og kostar 500kr.- á hvern hund.
-------------------------------------------------------------
Við hlökkum til að sjá ykkur á þjálfunum og á sýningunni sjálfri en dagskrá sýningar verður byrt sem fyrr á heimasíðu félagsins, www.rexhundar.is , og byrtum við tímana fyrir stórhundategundirnar hérna á deildar síðunni.

30.03.2011 14:26

Nú fer hver að verða seinastur....

Það styttist óðum í seinasta skráningardag sem þýðir að það fer hver að verða seinastur að skrá á sýninguna. 

Þessar upplýsingar er að finna á www.rexhundar.is um sýninguna:

Alþjóðleg sýning Hundaræktunarfélagsins Rex

Næsta sýning félagsins verður haldin helgina 30. apríl.- 1. maí
í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Seinasti skráningardagur er 5. apríl.
Lengri opnnunartími á skrifstofunni er þriðjudaginn 29.mars og þriðjudaginn 5.apríl en þá er opið milli kl. 18 - 20
Dómari á þessari sýningu er Bob Brampton frá Bretlandi.

Sýningarþjálfanir eru dagana 18., 19., og  26. apríl næstkomandi í Reiðhöll Gusts í Kópavogi og hefjast þær stundvíslega klukkan 19.30.
Skiptið kostar 500kr.- á hund.

Tekið er á móti skráningum á skrifstofu félagsins að Dugguvogi 6, annari hæð og í síma 533-1310 á skrifstofu tíma.
Einnig er tekið á móti skráningum á netfanginu,
rexhundar@rexhundar.is.

Ekki er tekið á móti skráningu nema greiðsla hafi borist. Skráning er bindandi.

Þeir sem kjósa að skrá á sýninguna í gegnum netfang eða síma geta lagt sýningargjaldið inn á reikning félagsins,
0135-26-1230 og kennitala: 570305-1230. 

Eyðublöð er hægt að nálgast á eftirfarandi linkum:

Skráning á hundasýningu

Skráning got, afkvæmahópur, ræktunarhópur, para keppni

Skráning ungir sýnendur

Skráning heimilishundar

Á sýnigunni fer einnig fram keppni ungra sýnenda og heimilishunda.

Ungir sýnendur eru fyrir börn á aldrinum 5 - 10 ára, yngri flokkur, og 11-16 ára, eldri flokkur.

Skráning í ungasýnendur og heimilishunda er á sér eyðublaði eins og sést hér fyrir ofan.
Einnig er hægt að skrá á skrifstofu félagsins, 533-1310, og á netfanginu
rexhundar@rexhundar.is

 

Félagsmönnum Hundaræktunarfélagsins Rex býðst að auglýsa í sýningarskrá.

Um er að ræða einfalda auglýsingu:

Ræktunarnafn, Tegund

Simi

Heimasíða,netfang

Mynd

Ræktunarnafn, tegund

Sími

Heimasíða, netfang

Verð án myndar: 3000

Verð með mynd: 3500

Auglýsingin skal sendast á rexhundar@rexhundar.is

ATH að mynd skal vera í sem bestri upplausn.
Fyrir annarskonar auglýsingar er ykkur bent á að hafa samband við stjórn á netfangið
rexhundar@rexhundar.is

Eins óskar stjórn félagsins eftir áhugasömum félagsmönnum til að hjálpa til á sýningunni. Þeir sem sjá sér fært að hjálpa til eru hvattir til að hafa samband við stjórnarmenn.

--------------------------------------------------------
Vonumst til að sjá ykkur sem flest á sýningunni

Fyrirlesturinn, sem haldinn var 28.mars síðastliðinn, var vel sóttur og var það mál manna að hann hafi verið mjög fræðandi.

09.03.2011 13:37

Fyrirlestur og sýning

Jæja, kæru félagsmenn. Það styttist óðum í sýningu og er því ekki seinna vænna en að drífa í að skrá hundinn ef það á að sýna hann.
Félagið mælir með að hundar sem notaðir eru til undaneldis séu sýndir allavega í unghunda eða opnum flokki áður en þeir eru notaðir auk þess að standast heilsufarskröfurnar. Félagið bendir bara á þá hunda sem standast þessar kröfur.

Seinasti skráningardagur er 5.apríl! Allar upplýsingar á www.rexhundar.is
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Félagið stendur svo fyrir áhugaverður fyrirlestri 28.mars næstkomandi um umhirðu hunda og skyndihjálp á hundum. Fyrirlesari er Ásdís Linda Sverrisdóttir dýralæknir.
Fyrirlesturinn er í Plastprent, Fosshálsi 17-25 í Rvk og hefst kl. 20.

09.03.2011 13:26

Fyrirlestur og sýning

Jæja, kæru félagsmenn. Það styttist óðum í sýningu og er því ekki seinna vænna en að drífa í að skrá hundinn ef það á að sýna hann.
Félagið mælir með að hundar sem notaðir eru til undaneldis séu sýndir allavega í unghunda eða opnum flokki áður en þeir eru notaðir auk þess að standast heilsufarskröfurnar. Félagið bendir bara á þá hunda sem standast þessar kröfur.

Seinasti skráningardagur er 5.apríl! Allar upplýsingar á www.rexhundar.is
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Félagið stendur svo fyrir áhugaverður fyrirlestri 28.mars næstkomandi um umhirðu hunda og skyndihjálp á hundum. Fyrirlesari er Ásdís Linda Sverrisdóttir dýralæknir.
Fyrirlesturinn er í Plastprent, Fosshálsi 17-25 í Rvk og hefst kl. 20.
  • 1
Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 25
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 34862
Samtals gestir: 12162
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 12:27:59