11.10.2009 11:27

Æfing og dagskrá sýningar

Seinasta sýningarþjálfun fyrir haustsýninguna verður á morgun, mánudaginn 12.október, klukkan 19:30 í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. Það hefur verið mjög góð mæting á æfingarnar og hlakkar okkur til að sjá ykkur öll aftur.
Dagskrá sýningar er komin og er hægt að nálgast hana í heild sinni á www.rexhundar.is
Stórhundategundirnar eru sýndar eins og hér segir: (Tíminn getur þó breyst).

Heimilishundar klukkan 12:00 laugardaginn 17.október
Schafer klukkan 12:15 laugardaginn 17.október
Dobermann klukkan 12:20 laugardaginn 17.október
Rottweiler klukkan 12:35 laugardaginn 17.október
Boxer klukkan 12:45 laugardaginn 17.október
Enskur Bulldog klukkan 12:50 laugardaginn 17.október

Eins þurfa nokkur atriði að koma fram til sýnenda og gesti sýningarinnar:

*Við viljum biðja alla sýnendur að vera mætta  með sína  hunda einni klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma. 

*A.T.H.  Sýningartími getur breyst fyrirvaralítið.

*Við viljum einnig minna sýnendur á að hafa með sér heisufarsbækur hundanna til að sýna í skráningu.

Allir hundar verða að vera sprautaðir við Parvo-smáveirusótt
Sýningartauminn.
Kúkapoka. Við þrýfum upp eftir hundinn okkar og reynum að láta hann gera þarfir sínar úti.
Nammi eða dót. Allt eftir því hvernig þið viljið verlauna hundinn.
Og ekki vera í fötum sem eru í svipuðum lit og hundurinn.

*Sýnandi hunds þarf að vera á þrettánda aldursári fyrir utan unga sýnendur.

* Vinsamleg tilmæli til sýnanda: Á sýningarsvæðinu er einungist reiknað með einni manneskju á hund. Áhorfendapallarnir eru fyrir aðra gesti.

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 40
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 38961
Samtals gestir: 13455
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:02:46